UPPLÝSINGAR UM HELLANA VIÐ HELLU
Ferðirnar okkar
​​
Hellarnir við Hellu bjóða upp á spennandi hellaferðir með leiðsögn um fimm dularfulla manngerða hella. Hellarnir eru fyrir margt sögulegir og er saga þeirra umvafin dulúð. Í ferðunum gefst þér tækifæri á að læra um spennandi sögu hellanna og uppgötva þau leyndarmál sem þeir geyma.
Leiðsögnin byrjar í móttökunni við þjóðveg 1 og tekur rúman klukkutíma.
​​
-
Leiðsögn á íslensku fyrsta laugardag í hverjum mánuði kl.14:00
-
Leiðsögn á ensku alla daga kl.10:00, 12:00, 14:00 og 16:00.
​
​
Aðgangseyrir:
-
Fullorðnir 5900 kr
-
Börn 6 -15 ára 2490 kr
-
Frítt fyrir börn yngri en 6 ára
-
Fjölskyldutilboð, 2 fullorðnir og 2 börn (6-15 ára): kr. 13.470
Þið getið bókað ykkar pláss í hellaferð með okkur á bóka ferð. Gott að mæta 15 mín fyrir leiðsagnartíma.
​