Search Results
22 results found with an empty search
- Special Tours | Caves of Hella
GJAFABRÉF Í HELLANA VIÐ HELLU Gjafabréf í Hellana við Hellu er frábær leið til að gleðja ættingja og vini. Hér neðar á síðunni getur þú keypt þitt gjafabréf. Í staðfestingarpósti sem kemur til þín í tölvupósti eftir kaupin er að finna hlekk sem leiðir þig inn á gjafabréfið á rafrænu formi. Þar getur þú slegið inn kveðju að eigin vali áður en þú prentar út gjafabréfin. Í gjafabréfinu er gjafakóði sem notaður er til greiðslu þegar pantað er á vefnum. Fyrir frekari upplýsingar, ekki hika við að hafa samband við okkur á info@cavesofhella.is eða í síma 620 6100.
- Fréttir | Caves of Hella | Iceland
Latest news and press of Caves of Hella NÝJUSTU FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR Hellarnir við Hellu bjóða upp á einstaka upplifun sem sameinar sögu, leyndardóma og ævintýri. Þessir ævafornu hellar sem i nnrammaðir eru af stórbrotnu náttúruumhverfi eru fullir af þjóðsagnahefð og veita sýn inn í undur jarðfræði, menningararfleifðar og einstaka sögu. Fjölmiðlafyrirspurnir og efni fyrir fjölmiðla Fyrir viðtöl, fjölmiðlaferðir eða aðgang að fjölmiðlaefni er teymið okkar tilbúið til aðstoðar. Hafa má samband við okkur í tölvupósti á info@cavesofhella.is eða í síma +354 620 6100. Nýjustu Fréttir Hér eru nýjustu tilkynningar og greinaskrif um Hellana við Hellu. Channel your inner Viking at this Viking-themed dinner inside a mysterious remote cave in Iceland. Fréttir Aug 3, 2024 Man-made caves in south Iceland could be from the first settlers Nov 18, 2023 Munu bandarískir vísindamenn leysa leyndardóm hellanna við Hellu? Rannsóknir Nov 16, 2023 Út að borða í einum af elstu hellum Íslands Fréttir Jun 27, 2023 Selja ráðgátuna að baki hellunum Fréttir May 26, 2021 Sandstone And Reverence: The Ancient Caves Of Hella Fréttir Jul 2, 2020 Gamlir manngerðir hellar vekja athygli Fréttir Jun 20, 2020
- Gjafabréf fyrirtæki | Caves of Hella
Gefðu ævintýralega góða gjöf Gjafabréf í Hellana við Hellu er frábær leið til að gleðja starfsfólkið þitt. Gjafabréfið gildir fyrir hefðbundna leiðsögn um Hellana við Hellu. Við bjóðum fyrirtækjum sem kaupa gjafabréfin okkar, eftirfarandi afslátt: Við bjóðum fyrirtækjum sem kaupa gjafabréfin okkar, eftirfarandi afslátt: Fjöldi Afsláttur Verð per miða 20-29 5% 3.705 30 - 39 10% 3.510 40-49 15% 3.315 50-59 20% 3.120 60+ 25% 2.925 Til þess að panta gjafabréf fyrir þína starfsmenn, smelltu á hlekkinn hér að neðan og sendu okkur tölvupóst á info@cavesofhella.is með fjölda gjafabréfa. Við afgreiðum pöntunina eftir að greiðsla hefur borist og sendum þér falleg gjafabréf með kóða sem starfsmenn þínir geta nýtt til þess að bóka spennandi hellaferð fyrir sig eða sína nánustu. Þú getur valið hvort þú vilt fá gjafabréfin á tölvutæku formi eða útprentuð. Einfaldara og skemmtilegra verður það ekki! Kaupa gjafabréf
- Research | Caves of Hella | Iceland
A research team conducted preliminary research at Hella Caves, investigating questions surrounding the origins of the artificial caves and their possible role in Iceland’s settlement history. Uppgröftur í Hrútshelli Við höldum áfram að uppgötva nýja spennandi hluti í hellunum. Við uppgröft Hrútshellis hefur komið í ljós fallega hellulagt gólf í helmingi hellisins sem og fremst í honum (hellulögð gólf er ekki að finna í öðrum hellum á Ægissíðu). Einnig eru sérstakar hleðslur fyrir miðju hellisins og vinstra megin við þær móbersgólf innst, líklega hola fyrir miðju og hellulagt gólf fremst. Við erum enn að grafast fyrir um þetta. Allt verkið er unnið með Ugga Ævarssyni minjaverði Suðurlands og Minjastofnum. Við tökum fagnandi öllum tilgátum um hleðslurnar. Gestir okkar geta núna kíkt ofan í hellinn og séð hluta hleðslunnar og gólfsins. Myndir frá uppgreftrinum Munu bandarískir vísindamenn leysa ráðgátuna um hellana? Hópur bandarískra vísindamanna vinnur nú að aldursgreiningu hellana og rannsakar hugsanlegt hlutverk þeirra í landnámi Íslands. Rannsakaður eru ristur í hellisveggjunum sem og setlög í hellunum. Notuð er nýstárleg aðferð við greiningu þeirra fjölmörgu og ólíku rista sem finna má í hellunum sem ekki hefur verið notuð áður hér á landi. Rannsóknarteymið er undir stjórn Laura Haynes prófessors í jarðefnafræði og Elizabeth Lastra prófessor í listasögu miðalda við háskólann Vassar College í New York fylki í Bandaríkjunum. Hellarnir við Hellu hafa löngum vakið upp spurningar sagnfræðinga, fornleifafræðinga og jarðfræðinga og hafa margir velt fyrir sér upphafi þeirra og tilgangi. Árið 2017 birti Árni Freyr Magnússon sagnfræðingur ritgerð þar sem fjallað er um þær aðferðir sem hægt er að nýta til að finna út aldur hellanna. Niðurstöður rannsókna Árna Freys voru að hægt væri að aldursgreina hellana með fjórum megin aðferðum. Kanna megi ritheimildir um þá, rannsaka áletranir og ristur á veggjum þeirra, aldursgreina mannvistarlög út frá gjósku og að lokum væri hægt að skoða gripi sem fundist hafa í einum af hellunum. „Aðferð bandarísku sérfræðinganna er mjög áhugaverð. Hún miðar að því að rannsaka risturnar á veggjunum. Þegar ég var að rannsaka þetta fyrir fimm árum gerði ég mér enga grein fyrir að svona stutt væri í að erlendir sérfræðingar hæfu rannsóknir með jafn fullkominni tækni og raun ber vitni. Þetta er tækni sem íslenskir fræðimenn hafa almennt ekki aðgang að. Það er auk þess gaman að sjá að bandarískir sérfræðingar á sviði listasögu og jarðfræði skuli velja Hellana við Hellu til rannsókna.“, segir Árni Freyr. Rannsóknarteymið notast við Reflectance Transformation Imaging (RTI) aðferð ásamt X-ray Fluorescence greiningu. RTI aðferðin er notuð til að rannskaka ristur á hellisveggjunum. Myndavél er stillt upp í hellunum og ljósi stýrt úr mörgum mismunandi áttum að ristunum og þær myndaðar í mikilli upplausn. Með þessu er hægt með mikilli nákvæmni að kortlegga risturnar á veggjunum, útlit þeirra og gerð. Í kjölfarið verður til hárnákvæmt þrívíddarkort sem sýnir hellaveggina. Því næst er notuð X-ray Fluorescence greining. Með þessari aðferð er steinryk sem finna má á veggjum hellanna greint en steinrykið safnast á veggina með vatni sem síast hefur í gegnum bergið allt frá upphafi. Þetta steinryk sem sums staðar er staðsett ofan á ristum getur gefið mikilvægar vísbendingar um aldur ristanna og þar með hellanna, ásamt því að segja til um gróður og tíðarfar á mismunandi tímum í sögu hellanna. Samsetning þessara steinefna getur gefið okkur mikilvæga vísbendingu um tímabilið þegar hellarnir voru grafnir út og teknir í notkun. Rannsóknarteymið mun einnig rannsaka setlögin í hellunum og tengsl þeirra við myndun Íslands í víðara samhengi. Með ítarlegri greiningu á setlögunum vonast sérfræðingarnir til að geta sagt með enn meiri nákvæmni til um upphaf hellanna. Árni Freyr segist bíða spenntur eftir niðurstöðum rannsóknarinnar. Það sé ekkert launungamál að aldursgreiningar á manngerðum hellum hafa reynst íslenskum fræðimönnum erfiðar í gegnum tíðina en með bættri tækni sé hugsanlega hægt að færast nær sannleikanum um upphaf þessara merku mannvirkja.
- The Heritage | Caves of Hella
ARFLEIÐ HELLANNA VIÐ HELLU Hellarnir á Hellu eru á jörðinni Ægissíðu og eru með þekktustu manngerðu hellum á Íslandi. Fjölskyldan okkar hefur séð um hellana í nærri 200 ár og 2019 opnuðum við fjóra af tólf hellum fyrir almenningi. Árið 2024 var fimmti hellirinn grafinn upp og er skyggnst inn í hann í leiðsögðu ferðunum okkar. Meginmarkmiðið er að varðveita hellana og segja sögu þeirra, söguna sem forfeður okkar sögðu okkur af leyndardómum hellanna og landnáminu fyrir landnám. Hellarnir eru elstu uppistandandi hýbýli á Íslandi. Þeir eru höggnir af mönnum en enginn veit hvenær. Sumir telja að þeir hafi verið gerðir af Keltum fyrir landnám norrænna manna á níundu öld. Hellarnir eru því hjúpaðir dulúð og í mörgum þeirra má finna veggristur, fangamörk, ártöl, krossmörk, búmerki og jafnvel rúnir. Í gegnum aldirnar hafa hellarnir t.d. verið notaðir fyrir húsdýr og til að geyma hey og matvæli. Skipulag hellanna er margs konar og í þeim má t.d. sjá forskála, strompa, brunna, berghöld, hillur og stalla. Hellarnir endast misvel og hefur styrkleiki bergsins, lag og þykkt þaks og veggja auk frágangs við strompa og dyr mikið um það að segja. Vel gerðir hellar með réttum frágangi geta staðið í aldir. Hellarnir eru friðlýstir og ganga verður um þá af virðingu. Með því að vera með skipulagða leiðsögn um hellana eru bundnar vonir við að hægt verði að gera upp fleiri hella, bjarga fornum minjum og auka aðgengi að elstu mannvirkjum sem enn standa á Íslandi. Fjölskyldan á Ægissíðu vinnur að því að byggja upp og varðveita umhverfi og sögu hellana í samvinnu við nærsamfélagið og Minjastofnun. Við hlökkum til að taka á móti ykkur og sýna ykkur duldan ævintýraheim Suðurlands
- Hópaferðir | Caves of Hella
HÓPAFERÐIR Sérstök leiðsögn fyrir litla eða stóra hópa Upplifðu Hellana í Hella á þínum eigin forsendum með hefðbundinni einkaleiðsögn. Okkar frábæru leiðsögumenn munu skapa ógleymanlega upplifun fyrir hópinn og deila fróðleik og sögum í hverju skrefi ferðarinnar. Tilvalið fyrir pör, fjölskyldur og litla eða stóra hópa sem leita að einstöku ævintýri. Verð fyrir hópferðir er breytilegt og fer eftir aðstæðum eins og fjölda þátttakenda, tíma, o.s.frv. Hafðu samband við okkur á info@cavesofhella.is eða í síma 620 6100 og við setjum saman ógleymanlega ferð sérstaklega fyrir þig!
- Gallery | Caves of Hella
VÍKINGAVEISLA Víkingaveisla að hætti landnámsmanna – fyrir þá sem vilja upplifa eitthvað virkilega einstakt. Þriggja rétta máltíð að hætti færustu kokka Hótel Rangár, sem snædd er undir ljúfum tónum við kertaljós. Til þess að bóka þessa einstöku víkingaveislu þarf að hafa samband við Hótel Rangá með að minnsta kosti viku fyrirvara. Aðeins í boði sem einkaviðburður. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Hótel Rangá. Hótel Rangá Photos on this site were captured by the talented Ingibjörg Friðriksdóttir @inki.music
- Weddings | Caves of Hella | Iceland
Venture inside the historic Caves of Hella. Here you can find pictures from these amazing caves in Iceland. BRÚÐKAUP Í HELLUNUM Hellarnir við Hellu eru heillandi og rómantískur staður til að játast ástinni sinni. Hellarnir skapa óviðjafnanlegan bakgrunn fyrir athöfnina þar sem saga og rómantík fléttast saman í flöktandi birtu kertaljósa. Hellarnir eru elstu uppistandandi hýbýli á Íslandi, en þar má finna veggristur, fangamörk, krossmerki og jafnvel rúnir. Fegurð og dulúð hellanna skapa leyndardómsfullt andrúmsloft sem mun sannarlega gera brúðkaupsdaginn ógleymanlegan. Hafðu samband við info@cavesofhella.is til að fá nánari upplýsingar um brúðkaup í Hellunum. Wedding partners
- Weddings | Caves of Hella | Iceland
Venture inside the historic Caves of Hella. Here you can find pictures from these amazing caves in Iceland. BRÚÐKAUP Í HELLUNUM Hellarnir við Hellu eru heillandi og rómantískur staður til að játast ástinni sinni. Hellarnir skapa óviðjafnanlegan bakgrunn fyrir athöfnina þar sem saga og rómantík fléttast saman í flöktandi birtu kertaljósa. Hellarnir eru elstu uppistandandi hýbýli á Íslandi, en þar má finna veggristur, fangamörk, krossmerki og jafnvel rúnir. Fegurð og dulúð hellanna skapa leyndardómsfullt andrúmsloft sem mun sannarlega gera brúðkaupsdaginn ógleymanlegan. Hér að neðan má finna upplýsingar um fyrirtæki sem við mælum heilshugar með til skipulagningar á stóra deginum. Pink Iceland Það væri okkur heiður að vera partur af stóra deginum ykkar. Við vitum af reynslu að það getur verið stórt verkefni að skipuleggja brúðkaup. Þó við vildum gjarnan aðstoða ykkur með öll smáatriði, er okkar aðaláhersla að kynna undrin sem Hellar í Hellu hafa upp á að bjóða og veita einstaka þjónustu og upplifun. Því viljum við benda ykkur á Pink Iceland fyrir alla ykkar brúðkaupsþarfir. Við höfum unnið með teyminu þeirra við fjölmörg brúðkaup og viðburði og mælum heilshugar með þjónustu þeirra, sem er vinaleg, sanngjörn og afar fagmannleg. Þau sjá um allt sem þarf fyrir lagalega giftingu, finna og bóka rétta vígslumanninn, ljósmyndara, blómaskreytingar, afþreyingu, samgöngur og allt annað sem þarf til að gera brúðkaupið ykkar fullkomið. Auk þess þekkja þau Hellana í Hellu út og inn og vita hvernig best er að nýta rýmið sem við bjóðum upp á. Pink Iceland weddings Hotel Rangá Á Hótel Rangá mætast ævintýri og lúxus sem skapa hina fullkomnu umgjörð fyrir stóra daginn þinn. Hótel Rangá er umvafið stórbrotnu landslagi Suðurlands og býður upp á töfrandi umhverfi fyrir ógleymanlegt brúðkaup - aðeins í 10 mínútna akstri frá Hellunum. Með aðstoð brúðkaupsskipuleggjanda Hótel Rangá og sérhæfðs teymis munu þau kappkosta við að gera draumabrúðkaupið þitt að veruleika. Hjá Hótel Rangá færðu persónuleg þjónustu og nákvæmni, þannig að hver einasti þáttur í brúðkaupinu þínu sé fullkomlega útfærður. Fyrir utan að vera lúxusdvalarstaður er Hótel Rangá fjölskyldurekið hótel og stoltur meðlimur í Small Luxury Hotels of the World. Hótel Rangá brúðkaup
- Hellarnir | Caves of Hella | Iceland
Learn what makes the Caves of Hella an historic landmark site in Iceland. Join us for a guided tour into these historic caves in Iceland. HELLARNIR VIÐ HELLU - ALDAGÖMUL ARFLEIÐ Hellarnir á Hellu eru á jörðinni Ægissíðu og eru með þekktustu manngerðu hellum á Íslandi. Fjölskyldan okkar hefur séð um hellana í nærri 200 ár og 2019 opnuðum við fjóra af tólf hellum fyrir almenningi. Í júlí 2024 hófst uppgröftur í fimmta hellinum og er nú hægt að skyggnast inn í hann. Meginmarkmiðið er að varðveita hellana og segja sögu þeirra, söguna sem forfeður okkar sögðu okkur af leyndardómum hellanna og landnáminu fyrir landnám. Hellarnir eru elstu uppistandandi hýbýli á Íslandi. Þeir eru höggnir af mönnum en enginn veit hvenær. Sumir telja að þeir hafi verið gerðir af Keltum fyrir landnám norrænna manna á níundu öld. Hellarnir eru því hjúpaðir dulúð og í mörgum þeirra má finna veggristur, fangamörk, ártöl, krossmörk, búmerki og jafnvel rúnir. Í gegnum aldirnar hafa hellarnir t.d. verið notaðir fyrir húsdýr og til að geyma hey og matvæli. Skipulag hellanna er margs konar og í þeim má t.d. sjá forskála, strompa, brunna, berghöld, hillur og stalla. Hellarnir endast misvel og hefur styrkleiki bergsins, lag og þykkt þaks og veggja auk frágangs við strompa og dyr mikið um það að segja. Vel gerðir hellar með réttum frágangi geta staðið í aldir. Hellarnir eru friðlýstir og ganga verður um þá af virðingu. Með því að vera með skipulagða leiðsögn um hellana eru bundnar vonir við að hægt verði að gera upp fleiri hella, bjarga fornum minjum og auka aðgengi að elstu mannvirkjum sem enn standa á Íslandi. Fjölskyldan á Ægissíðu vinnur að því að byggja upp og varðveita umhverfi og sögu hellana í samvinnu við nærsamfélagið og Minjastofnun. Við hlökkum til að taka á móti ykkur og sýna ykkur duldan ævintýraheim Suðurlands. Bóka ferð 1/1 "Umhorfs minnir þar um margt á sviðsmynd í Indiana Jones eða The Lord Of The Rings kvikmyndunum og er sjón sannarlega sögu ríkari." Júlía Margrét Einarsdóttir, menningarráðunautur RÚV, 2019. Fleiri umsagnir
- Special Tours | Caves of Hella
HÓPAR OG SÉRSTÖK TILEFNI Sérstök tilefni Hellarnir við Hellu bjóða upp á frábæran vettvang fyrir sérstök tilefni inni í dularfullum og sögulegum hellum. Hellarnir er einnig tilvalinn vettvangur fyrir ýmsa viðburði: Brúðkaup Árshátíðarferðir Óvissuferðir Ættarmót Tónleikar Skáldakvöld Draugasögukvöld Jónsmessuhátíð Rannsóknaleiðangur barna Jólaævintýri Hægt að aðlaga lengd leiðsagnar að hverjum og einum hóp. Hópferðir Hægt er að bóka hefðbundna leiðsögn fyrir fjölmenna hópa. Verð fyrir hópferðir er breytilegt og fer eftir aðstæðum eins og fjölda þátttakenda, tíma, o.s.frv. Ef þið hafið áhuga á sérferðum eða hópferðum með okkur, endilega hafið samband á info@cavesofhella.is eða í síma 620 6100 Hægt er að bóka miða í reglubundna ferð með leiðsögn á bóka ferð .
- Lúxusferð | Caves of Hella | Iceland
A private luxury cave experience offers a great way to explore the historical Caves of Hella. Included in the luxury tour is private guidance, whisky and beer sampling and delicacies, all made locally. NJÓTTU HELLANNA VIÐ HELLU Í LÚXUSFERÐ Í persónulegri hellaferð er boðið upp á frábæra leið til að skoða leyndardómsfullu Hellana við Hellu. Innifalið í lúxusferðinni er einkaleiðsögn fyrir þinn hóp ásamt því sem við setjum upp veislu fyrir skynfærin þegar við bjóðum ykkur að smakka viskí, gin og mjöð ásamt reyktum og gröfnum gæsabringum inni í einum hellinum. Lúxusferð í Hellana við Hellu er einstök upplifum, tilvalin fyrir starfsmanna- og vinahópa. Í ferðinni færðu einkaleiðsögn um þrjá dularfulla og sögulega hella og skyggnst er inn í tvo aðra. Einnig gefst tækifæri til að smakka íslenskt viskí frá Flóka en byggið sem notað er í viskíið er ræktað í nágrenni hellanna. Flóka viskí er fyrsta og eina viskíið sem framleitt er að öllu leyti á Íslandi. Við bjóðum upp á ginið VOR frá sama brugghúsi og höfum nú einnig tekið upp samstarf við Öldur,brugghús á Hellu en þeir eru þeir einu sem framleiða Mjöð á Íslandi. Gæsabringurnar koma frá kjötvinnslunni Villt og alið á Hellu. Grænkerakostir eru útvegaðir sé þeirra óskað og er þá greitt fyrir það sérstaklega. Panta lúxusferð Hægt er að panta lúxusferð í bókunarvélinni hér að neðan eða með því að hafa samband við okkur með tölvupósti á info@cavesofhella.is eða í síma 620 6100. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í einni af reglubundnu ferðunum okkar skaltu fara á síðuna bóka ferð . Við bjóðum auk þess upp á sérferðir fyrir sérstök tækifæri og hópaferðir .