top of page

Search Results

Search this site

22 results found with an empty search

  • The Heritage | Caves of Hella

    ARFLEIÐ HELLANNA VIÐ HELLU Hellarnir á Hellu eru á jörðinni Ægissíðu og eru með þekktustu manngerðu hellum á Íslandi. Fjölskyldan okkar hefur séð um hellana í nærri 200 ár og 2019 opnuðum við fjóra af tólf hellum fyrir almenningi. Árið 2024 var fimmti hellirinn grafinn upp og er skyggnst inn í hann í leiðsögðu ferðunum okkar. Meginmarkmiðið er að varðveita hellana og segja sögu þeirra, söguna sem forfeður okkar sögðu okkur af leyndardómum hellanna og landnáminu fyrir landnám. Hellarnir eru elstu uppistandandi hýbýli á Íslandi. Þeir eru höggnir af mönnum en enginn veit hvenær. Sumir telja að þeir hafi verið gerðir af Keltum fyrir landnám norrænna manna á níundu öld. Hellarnir eru því hjúpaðir dulúð og í mörgum þeirra má finna veggristur, fangamörk, ártöl, krossmörk, búmerki og jafnvel rúnir. Í gegnum aldirnar hafa hellarnir t.d. verið notaðir fyrir húsdýr og til að geyma hey og matvæli. Skipulag hellanna er margs konar og í þeim má t.d. sjá forskála, strompa, brunna, berghöld, hillur og stalla. Hellarnir endast misvel og hefur styrkleiki bergsins, lag og þykkt þaks og veggja auk frágangs við strompa og dyr mikið um það að segja. Vel gerðir hellar með réttum frágangi geta staðið í aldir. Hellarnir eru friðlýstir og ganga verður um þá af virðingu. Með því að vera með skipulagða leiðsögn um hellana eru bundnar vonir við að hægt verði að gera upp fleiri hella, bjarga fornum minjum og auka aðgengi að elstu mannvirkjum sem enn standa á Íslandi. Fjölskyldan á Ægissíðu vinnur að því að byggja upp og varðveita umhverfi og sögu hellana í samvinnu við nærsamfélagið og Minjastofnun. Við hlökkum til að taka á móti ykkur og sýna ykkur duldan ævintýraheim Suðurlands

  • Weddings | Caves of Hella | Iceland

    Venture inside the historic Caves of Hella. Here you can find pictures from these amazing caves in Iceland. BRÚÐKAUP Í HELLUNUM Hellarnir við Hellu eru heillandi og rómantískur staður til að játast ástinni sinni. Hellarnir skapa óviðjafnanlegan bakgrunn fyrir athöfnina þar sem saga og rómantík fléttast saman í flöktandi birtu kertaljósa. Hellarnir eru elstu uppistandandi hýbýli á Íslandi, en þar má finna veggristur, fangamörk, krossmerki og jafnvel rúnir. Fegurð og dulúð hellanna skapa leyndardómsfullt andrúmsloft sem mun sannarlega gera brúðkaupsdaginn ógleymanlegan. Hér að neðan má finna upplýsingar um fyrirtæki sem við mælum heilshugar með til skipulagningar á stóra deginum. Pink Iceland Það væri okkur heiður að vera partur af stóra deginum ykkar. Við vitum af reynslu að það getur verið stórt verkefni að skipuleggja brúðkaup. Þó við vildum gjarnan aðstoða ykkur með öll smáatriði, er okkar aðaláhersla að kynna undrin sem Hellar í Hellu hafa upp á að bjóða og veita einstaka þjónustu og upplifun. Því viljum við benda ykkur á Pink Iceland fyrir alla ykkar brúðkaupsþarfir. Við höfum unnið með teyminu þeirra við fjölmörg brúðkaup og viðburði og mælum heilshugar með þjónustu þeirra, sem er vinaleg, sanngjörn og afar fagmannleg. Þau sjá um allt sem þarf fyrir lagalega giftingu, finna og bóka rétta vígslumanninn, ljósmyndara, blómaskreytingar, afþreyingu, samgöngur og allt annað sem þarf til að gera brúðkaupið ykkar fullkomið. Auk þess þekkja þau Hellana í Hellu út og inn og vita hvernig best er að nýta rýmið sem við bjóðum upp á. Pink Iceland weddings Hotel Rangá Á Hótel Rangá mætast ævintýri og lúxus sem skapa hina fullkomnu umgjörð fyrir stóra daginn þinn. Hótel Rangá er umvafið stórbrotnu landslagi Suðurlands og býður upp á töfrandi umhverfi fyrir ógleymanlegt brúðkaup - aðeins í 10 mínútna akstri frá Hellunum. Með aðstoð brúðkaupsskipuleggjanda Hótel Rangá og sérhæfðs teymis munu þau kappkosta við að gera draumabrúðkaupið þitt að veruleika. Hjá Hótel Rangá færðu persónuleg þjónustu og nákvæmni, þannig að hver einasti þáttur í brúðkaupinu þínu sé fullkomlega útfærður. Fyrir utan að vera lúxusdvalarstaður er Hótel Rangá fjölskyldurekið hótel og stoltur meðlimur í Small Luxury Hotels of the World. Hótel Rangá brúðkaup

  • Umsagnir | Caves of Hella

    Umsagnirnar okkar

  • Mathellir | Caves of Hella

    Gæddu þér á góðgæti úr héraði. Við bjóðum upp á einstaka kartöflusúpu frá Þykkvabæ og svo er alltaf heitt á könnunni. Verið velkomin í Mathelli! Góðgæti úr héraði - Opnum aftur í vor - Fáðu þér dýrindis bita í nýja matarvagninum okkar. Við bjóðum upp á ýmsar kræsingar, einstaka kartöflusúpu úr Þykkvabænum og sunnlenskar pylsur. Út í kartöflusúpuna er einstaklega gott að bæta við beikoni og sýrðum rjóma með graslauk. Þú getur notið veitinganna í móttökunni okkar og auk þess fengið þér heitan kaffibolla og sætan mola. Verið velkomin í Mathelli!

  • Gjafabréf | Hellarnir við Hellu

    Here you can buy a gift card to the Caves of Hella experience in Iceland. Join our guided tours into four mysterious and historic caves. GJAFABRÉF Í HELLANA VIÐ HELLU Gjafabréf í Hellana við Hellu er frábær leið til að gleðja ættingja og vini. Hér neðar á síðunni getur þú keypt þitt gjafabréf. Í staðfestingarpósti sem kemur til þín í tölvupósti eftir kaupin er að finna hlekk sem leiðir þig inn á gjafabréfið á rafrænu formi. Þar getur þú slegið inn kveðju að eigin vali áður en þú prentar út gjafabréfin. Í gjafabréfinu er gjafakóði sem notaður er til greiðslu þegar eigandi gjafabréfsins pantar er á vefnum. Vegna kaupa á gjafabréfum fyrir fjölskylduferðir/börn eða fyrir frekari upplýsingar, ekki hika við að hafa samband við okkur á info@cavesofhella.is eða í síma 620 6100. Gefðu ógleymanlega upplifun!

  • Historical caves | Caves of Hella | South Iceland

    Caves of Hella is an historical landmark site in Iceland. We offer you an exciting guided tour into four historic caves in Iceland. HELLARNIR VIÐ HELLU Upplifðu dularfulla undirheima Suðurlands Ævintýraheimur Hellanna við Hellu er einstakur. Fræðandi og heillandi afþreying sem hentar öllum aldri og í hvaða veðri sem er. Hellarnir eru staðsettir við þjóðveg 1 í aðeins um klukkutíma akstursfjarlægð frá Reykjavík. Fornir manngerðir hellar hafa fundist í landi Ægissíðu við Hellu. Við förum inn í þrjá þeirra og skyggnumst inn í tvo. Hellarnir eru friðlýstir og þeir sýndir með leiðsögn. Fjölskyldan á Ægissíðu vinnur að því að byggja upp og varðveita umhverfi og sögu hellanna í samvinnu við nærsamfélagið og Minjastofnun Íslands. Í hellunum má t.d. finna stórmerka krossa, gamlar veggjaristur, myndir, syllur og innhöggvin sæti. Leyndardómur umlykur hellana og öldum saman hefur fólk velt fyrir sér hvort hellarnir séu gerðir af pöpum og hve gamlir þeir séu. Leiðsögn á ensku alla daga kl. 10:00, 12:00 og 14:00. Leiðsögn á íslensku fyrsta laugardag í hverjum mánuði kl.14:00. Sérbókanir fyrir fjölmenna hópa og Lúxusferðir (íslensk eða ensk leiðsögn í boði). Eingöngu er hægt að skoða hellana í fylgd starfsmanna Hellanna. Aðgangseyrir fyrir klukkutíma leiðsögn um hellana: Fullorðnir kr. 6.950 Börn 6-15 ára kr. 2.850 Frítt fyrir börn 5 ára og yngri Fjölskyldutilboð, 2 fullorðnir og 2 börn (6-15 ára): kr. 15.900 Gott bílastæði, nóg pláss fyrir rútur, engin gjaldskylda The latest Google Reviews Book now Bókaðu ferðina hér Allar ferðir á ensku. Íslensk leiðsögn fyrsta laugardag hvers mánaðar kl. 14:00.

  • Hópaferðir | Caves of Hella

    HÓPAFERÐIR Sérstök leiðsögn fyrir litla eða stóra hópa Upplifðu Hellana í Hella á þínum eigin forsendum með hefðbundinni einkaleiðsögn. Okkar frábæru leiðsögumenn munu skapa ógleymanlega upplifun fyrir hópinn og deila fróðleik og sögum í hverju skrefi ferðarinnar. Tilvalið fyrir pör, fjölskyldur og litla eða stóra hópa sem leita að einstöku ævintýri. Verð fyrir hópferðir er breytilegt og fer eftir aðstæðum eins og fjölda þátttakenda, tíma, o.s.frv. Hafðu samband við okkur á info@cavesofhella.is eða í síma 620 6100 og við setjum saman ógleymanlega ferð sérstaklega fyrir þig!

  • Gallery | Caves of Hella

    VÍKINGAVEISLA Víkingaveisla að hætti landnámsmanna – fyrir þá sem vilja upplifa eitthvað virkilega einstakt. Þriggja rétta máltíð að hætti færustu kokka Hótel Rangár, sem snædd er undir ljúfum tónum við kertaljós. Til þess að bóka þessa einstöku víkingaveislu þarf að hafa samband við Hótel Rangá með að minnsta kosti viku fyrirvara. Aðeins í boði sem einkaviðburður. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Hótel Rangá. Hótel Rangá Photos on this site were captured by the talented Ingibjörg Friðriksdóttir @inki.music

  • Blog | Caves of Hella

    All Posts Log in / Sign up No posts published in this language yet Once posts are published, you’ll see them here.

Ægissíða 4, 851 Hella

 Sími: 620-6100

  • googlePlaces
  • facebook

©2024 by Caves of Hella. Proudly created with Wix.com

Kt: 700819-1320

 VSK: 136489

Skilmálar

bottom of page